topbar_logo
× Heim Þjónustur Myndefni Um okkur Hafa samband
← Til baka í blogg

GERA ALLT KLÁRT FYRIR SUMARIÐ

Blogg / Vlogg

7. mars 2026

Í fyrsta myndbandi okkar kynnum við Útivinna, hverjir við erum, hvað við gerum og hvert stefnan er. Þessi rás er ekki bara um þjónustuna heldur um ferðalagið, hið góða og það erfiða, að reka fyrirtæki frá grunni. Í þessum þætti förum við niður í kjölinn á vélum okkar og undirbúum þær fyrir sumarið því góð þjónusta byrjar á góðum tækjum.

Hvað er Útivinna?

Útivinna er útivistarþjónustufyrirtæki með sérhæfingu í snjómokstur, hálkuvörnun, háþrýstiþvott, garðsláttur, garðyrkju, beðahreinsun, síluber og þakrennuhreinsun. Við þjónustuðum bæði einstaklinga og fyrirtæki á Íslandi. En Útivinna er meira en bara þjónusta. Hún er saga, af tveggja stráka sem hafa verið að byggja eitthvað upp frá grunni í tæp tvö ár. Það hefur verið ferðalag með lærdómi, áskorunum og sigrum og við höfum vaxið með hverju skrefinu. Núna hlökkum við til að taka næsta skref - stækka, bæta þjónustuna og halda áfram að sanna okkur gagnvart viðskiptavinum okkar. Framtíðin lítur björt út og við erum tilbúin.

Í fyrsta þætti okkar förum við niður í kjölinn á eitthvað sem mörg fyrirtæki gera en tala sjaldan um - viðhald og lagfæringar á vélum. Áður en sumarþjónustan getur hafist þarf allt tækjabúnaðurinn að vera í toppstandi. Við sýnum þér hvernig við förum yfir vélarnar okkar, gerum við þær, olíuskiptum, skoðum slithluta og tryggjum að allt sé tilbúið þegar þörf er á. Góð þjónusta byrjar langt áður en við mætum á staðinn - hún byrjar í verkstæðinu. Við erum að byrja ferðalag og við viljum að þú sért með okkur. Ef þig langar að sjá hvernig smáfyrirtæki er byggt upp á Íslandi - frá vélaviðhaldi yfir í samningaviðræður og allt þar á milli - þá er þetta rásin fyrir þig. Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum og hafðu samband ef þig vantar útivistarþjónustu sem þú getur treyst.

Eldri blogg færslur

thumbnail

GERA ALLT KLÁRT FYRIR SUMARIÐ

7. mars 2026
thumbnail

Annað dæmi um blogg

1. mars 2026